Kvikmyndin Missir í leikstjórn Ara Alexanders Ergis Magnússonar verður frumsýnd hérlendis á morgun. Myndin, sem byggð er á samnefndri skáldsögu Guðbergs Bergssonar, fjallar um 85 ára gamlan mann sem nýlega er orðinn ekkill. Á hverjum morgni vaknar hann og starir á duftkerið með jarðneskum leifum eiginkonu sinnar. Hann áræðir að lokum að hræra ösku konu sinnar í bolla með heitu vatni. Í sömu andrá og hann drekkur úr bollanum birtist hún honum og þau deila minningum úr lífi sínu saman. Myndin er ferðalag mannsins þar sem hann leitar svara við sorgum sínum og tilgangi lífsins með aðstoð glaðværs nágranna síns. Með aðalhlutverk fara Þorsteinn Gunnarsson, Guðrún Gísladóttir og Sigurður Sigurjónsson.