bera hönd fyrir höfuð sér merkir að verja sig gegn árás. Verði maður bókstaflega fyrir líkamsárás eða ætlunin sé að vega mann með vopnum ber maður hönd eða hendur fyrir sig

bera hönd fyrir höfuð sér merkir að verja sig gegn árás. Verði maður bókstaflega fyrir líkamsárás eða ætlunin sé að vega mann með vopnum ber maður hönd eða hendur fyrir sig. Ekki er víst að dugi – en líklegra þó ef maður ber höndina fyrir höfuðið en „yfir“. Og nýtist gegn hvers kyns atlögum, einnig gagnrýni og ásökunum.