Þjálfari Árni Freyr Guðnason lék 25 leiki með Fylki frá 2012 til 2013.
Þjálfari Árni Freyr Guðnason lék 25 leiki með Fylki frá 2012 til 2013.

Knattspyrnuþjálfararnir Árni Freyr Guðnason og Jóhann Birnir Guðmundsson eiga nú í viðræðum við forráðamenn Fylkis um að taka við þjálfun liðsins eftir tímabilið. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins en Fylkismenn eru í þjálfaraleit þar sem Rúnar Páll Sigmundsson mun láta af störfum eftir tímabilið. Árni Freyr og Jóhann Birnir náðu mjög góðum árangri með ÍR á nýliðnu keppnistímabili í 1. deildinni þar sem liðið hafnaði í 5. sætinu.