Þórey Þóranna Þórarinsdóttir fæddist í Reykjavík 8. apríl 1961. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild LSH 22. september 2024.

Hún var dóttir hjónanna Ólafar Bjarnadóttur, f. 30. júní 1934, á Uppsölum í Miðfirði, og Þórarins Þórarinssonar, f. 27. júní 1930 í Vigur, d. 8. september 2004. Systur Þóreyjar eru: a) Margrét, f. 22. mars 1959, maki Frímann Ólafsson og eiga þau þrjú börn. b) Bjarney, f. 12. október 1970, maki Þorsteinn Jón Haraldsson og eiga þau tvo syni. c) Sóley, f. 5. febrúar 1972, maki Páll Einarsson og eiga þau fjögur börn.

Þann 19. mars 1988 giftist Þórey Hjálmari Bjarnasyni kjötiðnaðarmeistara. Foreldrar hans voru hjónin Þorgerður Hjálmarsdóttir, f. 14. janúar 1921, d. 28. maí 2004, og Bjarni B. Óskarsson, f. 3. mars 1920, d. 4. júní 1990.

Synir Þóreyjar og Hjálmars eru:

...