Ingvi Jónasson
Ingvi Jónasson

Fasteignaþróunarfélagið Klasi hefur kynnt hugmyndir að uppbyggingu á svæðinu milli Smárabyggðar og Smáralindar. Rætt er um 70-80 íbúðir, sem eru álíka margar íbúðir og á Hafnartorgi í Reykjavík, og 12-14 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði, en til samanburðar er Norðurturninn um 18 þúsund fermetrar.

Rætt er við Ingva Jónasson framkvæmdastjóra Klasa í ViðskiptaMogganum í dag.

Hann segir mörg fyrirtæki áhugasöm um að flytja í nýtt skrifstofuhúsnæði við Smáralind.

Búið er að selja 636 íbúðir í Smárabyggð og eru aðeins 22 íbúðir óseldar. Reikna má með að íbúðasalan nemi um 54 milljörðum kr. á sex árum. » 4 og ViðskiptaMogginn