Amandine Justine Toi átti stórleik fyrir Þór frá Akureyri og skoraði 27 stig þegar liðið vann sinn fyrsta leik í deildinni gegn Grindavík í 3. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í Höllinni á Akureyri í gær. Leiknum lauk með tíu stiga sigri Þórsara, 81:71, en Toi tók einnig sex fráköst í leiknum og gaf eina stoðsendingu. » 23