Þórey Þóranna Þórarinsdóttir fæddist 8. apríl 1961. Hún lést 22. september 2024.

Útför hennar fór fram 16. október 2024.

Okkar kæra vinkona og samstarfskona Þórey hóf störf hjá Útflutningsráði árið 1998. Hún sinnti margvíslegum verkefnum um árabil en sá lengst af um verkefni tengd bókhaldi. Þórey var frábær starfsmaður, nákvæm, talnaglögg og eldklár en líka skilningsrík gagnvart þeim erli sem óhjákvæmilega fylgir starfsemi Íslandsstofu um allan heim. Hún sá til þess að við stæðum skil á því sem okkur ber en gerði það af stakri kurteisi og var ætíð reiðubúin að aðstoða ef þess var þörf.

Þórey var ákveðinn klettur í starfseminni hjá Íslandsstofu. Stofnanaminnið var svo sannarlega til staðar eftir tæplega þriggja áratuga starf. En hún var líka frábær hlekkur í þeirri félagslegu heild sem vinnustaður

...