Enska knattspyrnufélagið Manchester City er farið að huga að því hvernig lífið gæti litið út eftir að Pep Guardiola knattspyrnustjóri karlaliðsins lætur af störfum. Samningur Guardiola rennur út næsta sumar og hefur Spánverjinn ekkert viljað gefa upp um hvort hann hyggist halda áfram eður ei. Fari svo að Guardiola láti af störfum næsta sumar er Rúben Amorim, portúgalskur stjóri Sporting frá Lissabon, efstur á óskalistanum, að því er The Guardian greinir frá.

Trey Nyoni, ungur og efnilegur leikmaður karlaliðs Liverpool í knattspyrnu, hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið. Samningurinn gildir til næstu tæplega þriggja ára, til sumarsins 2027. Nyoni er aðeins 17 ára gamall sóknartengiliður sem gekk til liðs við Liverpool frá Leicester City fyrir rúmu ári. Lék hann sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið í ensku bikarkeppninni á síðasta

...