Lilja Hrund Lúðvíksdóttir
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir

Lilja Hrund Lúðvíksdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Hún hóf störf í síðustu viku.

Lilja Hrund hefur lokið meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og LL.M-prófi í alþjóðalögfræði frá Tufts-háskóla í Bandaríkjunum. Hún starfaði sem blaðamaður á miðlum Árvakurs 2018-2022 og hefur starfað sem aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2022.