Knattspyrnumaðurinn Matthías Vilhjálmsson hefur framlengt samning sinn við Víking um eitt ár. Hann verður því með Íslandsmeisturunum á næstu leiktíð. Matthías kom til Víkings frá FH á síðasta ári og var lykilmaður í Víkingsliðinu sem varð tvöfaldur…
Framlengir Matthías Vilhjálmsson verður áfram í herbúðum Víkings.
Framlengir Matthías Vilhjálmsson verður áfram í herbúðum Víkings. — Morgunblaðið/Óttar

Knattspyrnumaðurinn Matthías Vilhjálmsson hefur framlengt samning sinn við Víking um eitt ár. Hann verður því með Íslandsmeisturunum á næstu leiktíð. Matthías kom til Víkings frá FH á síðasta ári og var lykilmaður í Víkingsliðinu sem varð tvöfaldur meistari með sigri á Íslandsmótinu og í bikarkeppninni. Hann skoraði fimm mörk í 21 deildarleik á síðustu leiktíð og hefur gert eitt mark í þrettán leikjum á yfirstandandi tímabili, en hefur glímt við meiðsli.