Útgáfuhóf Sæfara, sem heitir réttu nafni Atli Sævar Guðmundsson, verður haldið í kvöld, 17. október, kl. 20 á Valkyrjunni Bistro og bar í Skipholti 15 í Reykjavík. Verður þar hlustað á nýútgefna plötu Sæfara, Wolfheart, og klukkan 21 verður svo…
Sæfari Atli Sævar Guðmundsson býr til tónlist undir því nafni.
Sæfari Atli Sævar Guðmundsson býr til tónlist undir því nafni.

Útgáfuhóf Sæfara, sem heitir réttu nafni Atli Sævar Guðmundsson, verður haldið í kvöld, 17. október, kl. 20 á Valkyrjunni Bistro og bar í Skipholti 15 í Reykjavík.

Verður þar hlustað á nýútgefna plötu Sæfara, Wolfheart, og klukkan 21 verður svo frumsýnt nýtt tónlistarmyndband við eitt af lögum Sæfara, „Ice Queen“.

Myndbandinu leikstýrði Salvör Bergmann og var kvikmyndataka í höndum Svavars Burgundy Þórólfssonar. Vigdís Vala Valgeirsdóttir leikur í myndbandinu.

Þeir sem vilja kynna sér tónlist Sæfara og fá frekari upplýsingar geta meðal annars gert það á vefsíðu hans sem finna má á slóðinni saefari.com/music.