Anna Margrét Sigmundsdóttir fæddist 10. apríl 1987. Hún lést 29. september 2024.

Útför hennar fór fram 16. október 2024.

Það er eitthvað fallegt við þessa barnslegu trú, að sá sem við elskum sé í raun og veru ekki farinn. Anna Margrét lést af slysförum 29. september, eða Chego, eins og vinir Önnu kölluðum hana. Hún var mér afar kær.

Ég hitti Chego fyrst í teiti á Hinsegin dögum. Dagana á eftir leitaði ég á netinu, tígó, tegó, tjégo en fann ekki svartklæddu stelpuna með hárið allt fyrir andlitinu. Einhverju síðar sá ég hana aftur þar sem hún sat og teiknaði. Hún skar sig úr fjöldanum, var íhugul, spennandi og sveipuð einhvers konar dulúð. Við enduðum á að sitja tímanum saman að kjafta þetta kvöldið. „Allt umhverfið er mótað af arkitektúr! Ertu trúuð?“ sagði hún í sömu andrá. Það var

...