Hjörtur fæddist í Reykjavík 12. febrúar 1951. Hann lést á lungnadeild Landspítalans 11. október 2024.

Hjörtur var sonur hjónanna Harðar Reynis Hjartarsonar frá Eyrarbakka húsasmiðs og Erlu Pálsdóttur frá Reykjavík, þau eru bæði látin, Erla lést 8. maí 2008 og Hörður 27. september 2020.

Systkini Hjartar: Helgi Agnar, f. 1949, d. 2021, Ingibjörg Pála, f. 1956, gift Þórði Þórmundssyni og Lilja Hafdís, f. 1968, gift Frank Frankssyni.

Hjörtur lauk námi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 1972. Hann vann við smíðar öll sín ár en vann lengst af í Álverinu í Straumsvík.

Hjörtur kynntist Guðrúnu Svövu Guðmundsdóttur leikskólakennara, f. 7. desember 1950, árið 1968 í Glaumbæ og gengu þau í hjónaband 20. júní 1970 í Akraneskirkju. Þau bjuggu lengst

...