„Ég versla mest í Rauða krossinum, Hertex og öðrum svipuðum verslunum. Annars versla ég stundum á netinu en þá helst á síðum þar sem eru seld notuð föt eins og Regn, Depop eða eitthvað slíkt.“
Risarúllukragapeysan frá Gestuz er í uppáhaldi.
Risarúllukragapeysan frá Gestuz er í uppáhaldi.

Ekki stendur á svörum þegar Nadía er spurð um áhugamál sín. „Ég á þó nokkur áhugamál, hef til að mynda gríðarlegan áhuga á kvikmyndagerð og öllu sem henni tengist. Sá áhugi blómstraði í Verzló þar sem ég dundaði mér stundum við að gera stuttar stiklur fyrir nefndir. Eins og staðan er núna stefni ég á að sækja um í skóla og fara í kvikmyndagerð. Ég hef líka mikinn áhuga á tísku og hef haft síðan ég var lítil. Ég ólst upp á mjög listrænu heimili og þar sem mamma mín er fatahönnuður þá hafa tíska og föt alltaf verið í kringum mig. Fatahönnun hefur verið áhugamál hjá mér síðan ég var lítil og mér finnst stundum gaman að setjast við saumavél og leika mér við að sauma eitthvað. En þegar kemur að íþróttum þá stunda ég snjóbretti á veturna.“

Sat klukkutímum saman og saumaði

Nadía er með flottan fatastíl sem sést vel á instagramsíðunni hennar, hvenær

...