60 ára Jakob er úr Breiðholtinu en hefur búið lengi í Kópavogi. Hann er húsasmíðameistari og starfar hjá Mannverki sem byggingarstjóri við að gera baðlón. Áhugamálin eru íþróttir og útivist, m.a. skotveiði og göngur.


Fjölskylda Eiginkona Jakobs er Rebekka Cordova, f. 1965 í Bandaríkjunum, kennari í Ölduselsskóla. Börn þeirra eru Guðrún Ása, f. 1984, Sigurjón, f. 1996, og Kristinn Logi, f. 1999. Barnabörnin eru orðin fjögur. Foreldrar Jakobs voru Ásmundur Ólafsson, f. 1937, d. 2016, húsasmíðameistari, og Guðrún Ása Magnúsdóttir, f. 1937, d. 2012, bankastarfsmaður lengst af.