Við bjóðum upp á slökun frá amstri dagsins um leið og húðin fær yfirhalningu, en fagleg vinnubrögð í fallegu umhverfi eru einkunnarorð okkar,“ segir Sigríður Arna Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og annar tveggja eigenda Húðarinnar skin clinic í Skipholti 50b. „Ég og dr. Lára G. Sigurðardóttir læknir stofnuðum fyrirtækið saman á sínum tíma og höfum frá upphafi sérhæft okkur í forvörnum og meðferðum sem viðhalda heilbrigði húðarinnar. Við bjóðum upp á gott úrval húðmeðferða sem eru byggðar á vísindarannsóknum,“ segir Sigríður Arna.
Flestar húðmeðferðir Húðarinnar skin clinic krefjast heilbrigðismenntunar. „Ég er hjúkrunarfræðingur að mennt og Lára er læknir sem hefur sérhæft sig í forvarnarfræðum. Hjá okkur starfa einnig tveir hjúkrunarfræðingar sem hafa næstum verið með okkur frá upphafi, Arndís Ágústsdóttir og Drífa Ísabella Davíðsdóttir. Síðan bættist
...