Toppur frá Anitu Hirlekar, kostar 36.900 kr.
Toppur frá Anitu Hirlekar, kostar 36.900 kr.

Það er eitthvað hlýlegt og hátíðlegt við vínrauðan lit. Kosturinn við hann er líka sá að hann passar við svo margt, hvort sem það er önnur föt í fataskápnum eða hlutirnir inni á heimilinu. Þessi litur er í uppáhaldi hjá mörgum og er klassískur. Það kemur einnig vel út að klæðast honum alveg frá toppi til táar.

Vínrautt leður eða leðurlíki er sérstaklega flott núna eins og reimuðu buxurnar frá Saks Potts sem verða notaðar um ókomin ár. Glitrandi vínrauður kjóll eða mynstraði toppurinn frá Hildi Yeoman munu koma sér vel í allar veislurnar og viðburðina sem fram undan eru. Hvað varðar heimilið þá má koma litnum inn með kertum, blómapottum eða handklæðum. Allt sem þú fjárfestir í í þessum lit geturðu einnig notað yfir jólatímann sem er á næsta leiti, ótrúlegt en satt.