Mannát er ekki það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það vaknar að morgni og sjálfsagt fordæma nær allir íbúar jarðar það. Engu að síður hefur það verið vinsælt umfjöllunarefni og því ætlar Dagrún Ósk Jónsdóttir, doktor í þjóðfræði frá Háskóla…
Þjóðfræðingur Dagrún Ósk Jónsdóttir hefur rannsakað mannát.
Þjóðfræðingur Dagrún Ósk Jónsdóttir hefur rannsakað mannát.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Mannát er ekki það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það vaknar að morgni og sjálfsagt fordæma nær allir íbúar jarðar það. Engu að síður hefur það verið vinsælt umfjöllunarefni og því ætlar Dagrún Ósk Jónsdóttir, doktor í þjóðfræði frá Háskóla Íslands, að bjóða upp á námskeið um mannát og menningu hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þriðjudagskvöldin 29. október og 5. nóvember, samtals fjórar klukkustundir. „Þetta er ekki matreiðslunámskeið,“ leggur hún áherslu á.

Á námskeiðinu ætlar Dagrún að skoða mannát út frá ýmsum vinklum. „Ég ætla að fara yfir söguna, hvernig það hefur verið stundað í raunveruleikanum, og svo tala ég um hvernig það birtist í menningunni eins og í íslenskum þjóðsögum, hvernig fjallað hefur verið um mannát í goðsögum, ævintýrum

...