Frank Walter Sands fæddist í Cambridge, Massachusetts í Bandaríkjunum, 22. janúar 1966. Hann lést í Avignon í Frakklandi 8. október 2024.

Foreldrar Franks eru Victoria Leigh, f. 1939, og Frank E. Sands, f. 1936. Stjúpforeldrar Franks eru Brinna B. Sands, f. 1939, og Timothy Weaver, f. 1940. Alsystir Franks er Anne Whitney Sands, f. 1961. Stjúpsystkini hans eru Ellen Kitchel, f. 1963, Jennifer Kitchel-Rheining, f. 1965, d. 2021, og Davis Kitchel, f. 1968.

Frank kvæntist 21. júní 1992 Auðbjörgu Halldórsdóttur. Þau skildu 2021. Börn þeirra eru: Zoë Vala, f. 1995, Phoebe Sóley, f. 1998, og Heba Leigh, f. 2005.

Frank var með eindæmum fróður og mikill áhugamaður um sögu og vísindi. Hann lærði í Þýskalandi, Íslandi, Frakklandi og Belgíu og var með háskólagráður frá Boston University, Institut Superieur

...