Eva Guðmundsdóttir fæddist í Västervik í Svíþjóð 17. janúar 1989. Hún lést á heimili foreldra sinna í Kalmar 22. september 2024 eftir baráttu við krabbamein.

Foreldrar hennar eru Rosa Maria Guðmundsson, f. í Bahia, Brasilíu, 11. nóvember 1962, og Guðmundur Páll Guðmundsson, f. í Reykjavík 29. mars 1961.

Systkini Evu eru: Linda, f. 19. júní 1993, og Jónas Páll, f. 25. febrúar 2003.

Eva bjó í Hultsfred í Svíþjóð og síðar á Íslandi fyrstu ár ævinnar. Fjölskyldan flutti svo til Kalmar í Svíþjóð árið 1995. Eftir stúdentspróf flutti Eva til Noregs árið 2011. Hún bjó lengst af í Ósló. Þar starfaði hún m.a. hjá Avis bílaleigu og bílafyrirtækinu Tesla. Síðast starfaði hún hjá fjármálafyrirtækinu Arval.

Útför Evu fer fram frá St. Birgitta-kirkjunni í

...