Þrír Íslendingar komast á lista yfir 20 efnilegustu leikmenn Norðurlandanna í knattspyrnu í karlaflokki. Breski miðilinn DailyMail tekur saman listann en landsliðsmennirnir Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru báðir á listanum

Þrír Íslendingar komast á lista yfir 20 efnilegustu leikmenn Norðurlandanna í knattspyrnu í karlaflokki. Breski miðilinn DailyMail tekur saman listann en landsliðsmennirnir Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru báðir á listanum. Þeir léku saman hjá FC Köbenhavn í Danmörku en Orri leikur nú með Real Sociedad á Spáni og Hákon með Lille í Frakklandi. Þá er William Cole Campbell einnig á listanum en hann er á mála hjá þýska stórliðinu Dortmund. Cole, sem er 18 ára gamall, á íslenska móður en bandarískan föður. Hann hefur verið að spila með yngri landsliðum Bandaríkjanna. Hann á þó sjö leiki með U17 ára landsliði Íslands.

Knattspyrnumaðurinn Máni Austmann Hilmarsson hefur framlengt samning sinn við Fjölni og er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2026. Hann skoraði tólf mörk í 1. deildinni á síðustu leiktíð en Fjölnir fór í

...