Allison Janney bætist nú í hópinn. Leikur varaforseta Bandaríkjanna.
Allison Janney bætist nú í hópinn. Leikur varaforseta Bandaríkjanna. — AFP/Robyn Beck

Erindreki Allt var í loft upp í spennumyndaflokknum The Diplomat þegar fyrsta serían rann sitt skeið; bílasprengja og almennur djöfulgangur. Þráðurinn verður tekinn upp á Netflix 31. október þegar menn halda áfram að kafa ofan í flókið diplómatískt samband frændþjóðanna Bandaríkjanna og Bretlands. Keri Russell er áfram sendiherra BNA í Lundúnum og nú bætist Allison Janney við sem varaforseti BNA.