ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta 20. október kl. 11. Skólahljómsveit Árbæjar mun leika sín lög og Kirkjukór Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn og við undirleik Krisztinu K
Miklibær í Blönduhlið í Skagafirði
Miklibær í Blönduhlið í Skagafirði — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta 20. október kl. 11. Skólahljómsveit Árbæjar mun leika sín lög og Kirkjukór Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn og við undirleik Krisztinu K. Szklenár. Sr. Dagur Fannar Magnússon þjónar fyrir altari og prédikar. Að guðsþjónustunni lokinni mun Magnús Sævar kirkjuvörðu reiða fram kaffi og kleinur.

ÁSKIRKJA | Messa kl. 13. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar og Kór Áskirkju syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista. Einsöngvari verður Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir. Kaffisopi eftir messu.

BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón með stundinni hafa Dísa og Þórey María.

BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Í tilefni af bleikum október verður bleik kvöldmessa kl. 20. Kirkjugestir eru hvattir til að mæta í bleiku

...