Gunnar Axel Axelsson
Gunnar Axel Axelsson

Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri í Vogum, óskaði eftir lausn frá störfum á fundi bæjarráðs í gær. Hann hefur glímt við langtímaafleiðingar af covid-19 og hefur verið í veikindaleyfi að undanförnu. Hann stefndi að því að koma aftur til starfa um síðustu mánaðamót. Gunnar kveðst ekki vita hvað taki við í framhaldinu en segir að að heilsan og fjölskyldan verði í forgangi. Hann hefur starfað á sviði sveitarstjórnarmála um langt árabil og telur líklegt að hann muni taka að sér verkefni tengd sveitarstjórnarmálum þegar þar að kemur.