Haukar taka á móti finnska liðinu Riihimäki Cocks í 32-liða úrslitum Evrópubikars karla í handbolta á Ásvöllum annað kvöld, sunnudagskvöld, klukkan 18. Þetta er fyrri viðureign liðanna og fyrsti leikur beggja í keppninni en þau sátu hjá í 1. umferð. Haukar freista þess að feta í fótspor Valsmanna sem komu skemmtilega á óvart síðasta vetur, unnu þessa keppni og urðu Evrópubikarmeistarar.