Einar Örn Ólafsson
Einar Örn Ólafsson

Í ljósi nýlegra frétta af flugfélaginu Play vakna ýmsar áleitnar spurningar um rekstur félagsins.

Forsvarsmenn félagsins gáfu út í vikunni að rekstrartölur fyrir árið í ár yrðu verri en í fyrra, þegar reksturinn skilaði um 6,2 milljarða tapi fyrir skatt. Allar líkur eru því á að eigið fé verði neikvætt hjá félaginu, að óbreyttu. Forstjórinn lýsir því yfir á sama tíma að hann þurfi ekki meira fé í reksturinn og staðan sé sterk. Það getur ekki gengið fyrir flugrekanda að vera með neikvætt eigið fé frekar en annan rekstur. Því þarf augljóslega aukið fé til rekstrarins.

Gengi Play á markaði hefur lækkað um tæp 87% innan ársins miðað við lokagengi gærdagsins. Félagið hyggst kynna nýjar áherslur

...