Ólöf Kolbrún Guðbrandsdóttir fæddist í Bæ í Bæjarsveit 23. nóvember 1934. Hún lést eftir skammvinn veikindi á Sjúkrahúsinu á Akranesi 7. október 2024.

Olla var eina barn foreldra sinna, þeirra Guðbrands Þórmundssonar, f. 20.9. 1907, d. 16.7. 1974, og Kristínar Sveinbjarnardóttur, f. 30.8. 1900, d. 31.12. 1992.

Olla giftist Reyni Guðmundssyni frá Sauðárkróki 1. desember 1962 og eru börn þeirra: 1) Guðbrandur, f. 30.4. 1966, maki Anna Ólöf Kristjánsdóttir, f. 16.1. 1983. Barn Guðbrands af fyrra sambandi er Reynir Ágúst, f. 28.6. 1993. Börn Guðbrands og Önnu Ólafar eru Ólöf Kolbrún, f. 31.8. 2003, Kristín Finndís, f. 3.2. 2005 og Þórdís Selma, f. 2.8. 2018. 2) Kristinn, f. 15.2. 1972.

Olla ólst upp frá fyrsta aldursári í Nýja-Bæ og var í farskóla þar til hún fór tvo vetur í Reykholtsskóla, einn

...