Anna Dóra Þorgeirsdóttir fæddist 17. janúar 1962. Hún lést á krabbameinsdeild 11EG á Landspítalanum 7. október 2024.

Foreldrar hennar voru Anna Sigurjónsdóttir, f. 7.6. 1925, d. 28.7. 2003, og Þorgeir Pétursson, f. 3.5. 1922, d. 3.8. 1997.

Systkini Önnu Dóru: Guðrún, f. 7.5. 1947, d. 12.9. 2013, Ágúst, f. 30.8. 1949, Auður, f. 8.4. 1955, Kolbrún, f. 21.3. 1957, og Halla, f. 7.7. 1965.

Synir Önnu Dóru eru: 1) Sturla Már Hafsteinsson, f. 13.7. 1984, giftur Grace Agacita Tagaloguin, f. 31.10. 1994, dóttir þeirra er Sabrína Líf, f. 12.9. 2024. 2) Óðinn Atlason, f. 27.10. 1991, í sambúð með Gustavo Juan Cairo, f. 18.8. 1993.

Anna Dóra fæddist í Hvítárvallaskála (veitingaskálanum við Hvítárbrú) í Borgarfirði og bjó þar fyrsta æviár sitt en þá

...