Markaskorari Mohamed Salah fagnar marki sínu á Anfield í gær.
Markaskorari Mohamed Salah fagnar marki sínu á Anfield í gær. — AFP/Paul Ellis

Liverpool trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir torsóttan sigur gegn Chelsea, 2:1, í 8. umferð deildarinnar á Anfield í Liverpool í gær. Mohamed Salah kom Liverpool yfir á 29. mínútu en Nicolas Jackson jafnaði metin fyrir Chelsea í upphafi síðari hálfleiks. Curtis Jones skoraði sigurmarkið á 51. mínútu en Liverpool er með 21 stig í efsta sætinu.

John Stones reyndist hetja Manchester City þegar liðið heimsótti Wolves til Wolverhampton en City vann dramatískan sigur, 2:1. Stones skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur voru liðnar af uppgefnum uppbótartíma. Áður hafði Jörgen Strand Larsen komið Wolves yfir á 7. mínútu en Jasko Gvardiol jafnaði metin fyrir City á 33. mínútu. City er með 20 stig í öðru sætinu.

Þá missteig Arsenal sig óvænt á útivelli þegar liðið heimsótti Bournemouth en leiknum lauk með

...