Víkingur úr Reykjavík og Breiðablik mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Víkingsvelli í Fossvogi sunnudaginn 27. október. Víkingar unnu afar dramatískan sigur, 4:3, gegn ÍA í 26. umferð deildarinnar á Akranesi á laugardaginn á meðan Breiðablik vann nauman sigur gegn Stjörnunni á Kópavogsvelli, 2:1. »26