Helga Steinunn Hróbjartsdóttir fæddist 30. september 1936. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 28. september 2024.

Foreldrar hennar voru Ingibjörg Þorsteinsdóttir, f. 15. september 1909, d. 11.6. 2004, og Hróbjartur Árnason, f. 12.6. 1897, d. 11.2. 1953. Helga var önnur í röð fimm systkina, hin eru: Margrét, f. 18.2. 1934, d. 3.4. 2023, Helgi, f. 26.8. 1937, d. 6. 7. 2018, Árni, f. 1.12. 1938, d. 11.1. 2013, Friðrik, f. 5.6. 1940, og Jón Dalbú, f. 13.1. 1947.

Helga gekk að eiga Karl Sævar Benediktsson skólastjóra og sérkennara, f. í Reykjavík 23. febrúar 1934, d. 19. júlí 2022. Hann var sonur Aðalheiðar Kristnýjar Stefánsdóttur, f. 26.7. 1914, d. 23.2. 1987, og Benedikts Gabríels Guðmundssonar, f. 26.7. 1908, d. 3.3. 1972, en hlaut uppeldi sitt hjá fósturforeldrum, Katrínu og Karli Petterson sem bjuggu í Reykjavík. Karl átti einn bróður sammæðra,

...