Netflix-heimildarmyndin The Menendez Brothers er áhugaverð og hefur átt sinn þátt í því að fjölmargir krefjast þess að bræðrunum tveimur verði sleppt úr fangelsi, en þar hafa þeir dúsað í 35 ár. Bræðurnir myrtu foreldra sína á hrottalegan hátt en…
Bræðurnir Saga þeirra er sögð í Netflix-mynd.
Bræðurnir Saga þeirra er sögð í Netflix-mynd.

Kolbrún Bergþórsdóttir

Netflix-heimildarmyndin The Menendez Brothers er áhugaverð og hefur átt sinn þátt í því að fjölmargir krefjast þess að bræðrunum tveimur verði sleppt úr fangelsi, en þar hafa þeir dúsað í 35 ár. Bræðurnir myrtu foreldra sína á hrottalegan hátt en báru fyrir sig að faðirinn hefði beitt þá verstu tegund af kynferðisofbeldi allt frá því að þeir voru börn. Móðir þeirra hefði vitað af því en látið eins og ekkert væri.

Í myndinni var sýnt frá réttarhöldunum, rætt við bræðurna, ættingja þeirra, lögfræðinga, kviðdómendur og fleiri. Bræðurnir viðurkenndu sekt sína fúslega, sögðu morðin hvíla þungt á þeim en þeir hefðu óttast að foreldrarnir myndu drepa þá og því gripið til örþrifaráðs. Foreldrarnir voru forríkir en bræðurnir sögðu peninga ekki hafa haft nein áhrif á ákvörðun

...