Antony Blinken
Antony Blinken

Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna hélt enn á ný til Mið-Austurlanda í gær til að þrýsta á að samið yrði um vopnahlé á Gasasvæðinu.

Þetta er ellefta ferð Blinkens til Mið-Austurlanda frá því að stríð braust út á Gasa milli Ísraels og Hamas-samtakanna.

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að möguleikar á vopnahléi hafi aukist eftir að Yahya Sinwar leiðtogi Hamas féll í átökum á Gasa í síðustu viku.

...