Anna Pálsdóttir fæddist 24. október 1952. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar eftir skammvinn veikindi á gjörgæslu Landspítalans 8. október 2024.

Foreldrar Önnu voru Páll G. Pálsson, sjómaður og verkstjóri, f. 1. október 1922, d. 26. september 2009, og Vilhelmína Sigríður Jónsdóttir, húsmóðir og verkakona, f. 1. júlí 1922, d. 11. apríl 2010.

Anna átti tvö hálfsystkini sammæðra, Þórarin Smára Steingrímsson, f. 1943, og Jónínu Steineyju Steingrímsdóttur, f. 1947.

Eiginmaður Önnu er Ólafur Ingi Tómasson, f. 21. október 1953, þau giftust 19. janúar 1974. Börn þeirra eru Páll, f. 26. júlí 1978, og Hjördís Ýr, f. 27. maí 1982. Páll er trúlofaður Elísabetu Margeirsdóttur, f. 31. janúar 1985, þau eiga eitt barn, Margeir Inga, f. 9. febrúar 2021. Hjördís Ýr er gift Loga Karlssyni, f. 30. apríl 1981,

...