Sigrún Guðmundsdóttir fæddist 10. júní 1936 á Högnastöðum í Hrunamannahreppi. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi 7. október 2024.

Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Guðmundsson, bóndi á Högnastöðum, f. 27.10. 1904, d. 20.1. 1965, og Kristbjörg Sveinbjarnardóttir, f. 13.8. 1903, d. 16.5. 1987.

Systur Sigrúnar: Ásta, f. 8. febrúar 1933, d. 20. desember 2022, Guðmunda Ingibjörg, f. 15. janúar 1939, d. 12. júní 2012, Halldóra Þórdís, f. 17. september 1944.

Sigrún giftist 12. maí 1955 Guðbrandi Kristmundssyni frá Kaldbak í Hrunamannahreppi, f. 15. september 1930, d. 1. júlí 2021. Foreldrar hans voru Elín Hallsdóttir, f. 12. júní 1896, d. 20. júní 1942, og Kristmundur Guðbrandsson, f. 1. maí 1897, d. 24. des. 1954, er bjuggu á Kaldbak frá 1930 til æviloka.

...