Hallgrímur í tónum er yfirskrift á fræðsluerindi sem fram fer í Hallgrímskirkju í dag, þriðjudaginn 22. október, klukkan 12, en þann 27. október munu þeir Sigurður Sævarsson, tónskáld og skólastjóri, og Björn Steinar Sólbergsson, tónlistarstjóri…

Hallgrímur í tónum er yfirskrift á fræðsluerindi sem fram fer í Hallgrímskirkju í dag, þriðjudaginn 22. október, klukkan 12, en þann 27. október munu þeir Sigurður Sævarsson, tónskáld og skólastjóri, og Björn Steinar Sólbergsson, tónlistarstjóri Hallgrímskirkju og organisti, flytja Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar. Segir í tilkynningu að í dag muni þeir fjalla um Hallgrímspassíu Sigurðar og tónlist í tengslum við minningarár Hallgríms Péturssonar.