Eiríkur Sæmundsson fæddist 3. október 1925 í Sólheimagerði í Skagafirði. Hann lést á Hrafnistu, Sléttuvegi, 11. október 2024.

Eiríkur var sonur hjónanna Sæmundar Jóhannssonar og Guðnýjar Jónsdóttur, en alls eignuðust þau níu börn, sem nú eru öll látin.

Hann bjó með Stellu Þorvaldsdóttur, f. 9. febrúar 1934, og átti með henni þrjú börn, Þorvald, f. 1950, Eirík, f. 1955, og Stellu, f. 1960.

Sambýliskona Eiríks var Bryndís Jónsdóttir, f. 27.12. 1924, d. 28.7. 2024.

Eiríkur stundaði sjómennsku lengst af sinni starfsævi, en síðustu ár starfsævinnar vann hann við saltfiskvinnslu hjá SÍF.

Útför hans verður í Háteigskirkju í dag, 22. október 2024, klukkan

...