Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins ætlar að reyna að draga úr kolvetnaneyslu sinni á næstunni eftir að hafa bætt aftur á sig hluta kílóanna sem hann náði að losa sig við með herkjum. Hann var þó ekki bjartsýnn daginn eftir að stjórnin sprakk í…
Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins ætlar að reyna að draga úr kolvetnaneyslu sinni á næstunni eftir að hafa bætt aftur á sig hluta kílóanna sem hann náði að losa sig við með herkjum. Hann var þó ekki bjartsýnn daginn eftir að stjórnin sprakk í síðustu viku, þegar hann deildi því hvað hann ætlaði að borða um kvöldið í Skemmtilegri leiðinni heim. „Ég var með mikil áform og var byrjaður á því að sleppa öllum kolvetnum og slíku,“ sagði Sigmundur, sem segist hafa bætt á sig 20-25 kílóum. Hann bjóst þó helst við að þurfa að fá sér samloku á hlaupum vegna anna.