Skólaferðalag Enskir nemendur virða fyrir sér hraunið sem einkennir landslagið umhverfis Grindavík. Bærinn er nú opinn almenningi og hafa margir nýtt sér tækifærið og skoðað svæðið.
Skólaferðalag Enskir nemendur virða fyrir sér hraunið sem einkennir landslagið umhverfis Grindavík. Bærinn er nú opinn almenningi og hafa margir nýtt sér tækifærið og skoðað svæðið. — Morgunblaðið/Eyþór

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir allt hafa gengið vel fyrir sig í gær er opnað var fyrir aðgengi almennings að Grindavíkurbæ á ný. Fáir ferðamenn hafi komið inn í bæinn, samkvæmt hans upplýsingum.

Að sögn lögreglustjórans ætti að vera í lagi að heimsækja bæinn, eins og staðan er í dag. Hann segir lögreglu þó fylgjast vel með stöðunni og vinna eftir upplýsingum Veðurstofu Íslands.

„Menn þurfa að vera undirbúnir fyrir það að það gæti dregið aftur til tíðinda, þá með nýju kvikuhlaupi eða eldgosi. Við þær aðstæður gætum við þurft að takmarka aðgengi að bænum með svipuðum hætti og við höfum gert hingað til,“ segir Úlfar í samtali við Morgunblaðið.

Hann nefnir að þörf sé á viðvörunarskiltum á þeim vegum sem liggja inn í bæinn og gerir hann ráð fyrir að þau skilti verði sett upp í

...