Evrópuævintýri FH og Vals í handboltanum heldur áfram í kvöld en þá taka FH-ingar á móti sænska liðinu Sävehof í Evrópudeildinni í Kaplakrika klukkan 18.45. Með Sävehof leikur Tryggvi Þórisson, leikmaður 21-árs landsliðsins. Valsmenn eru komnir til Þýskalands þar sem þeir mæta hinu firnasterka liði Melsungen, sem nú er efst í þýsku deildinni, en með því leika Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson.