Jón Ágúst Garðarsson, framkvæmdastjóri byggingarfélagsins Bestlu, áformar að hefja jarðvinnu á Nauthólsvegi 79 eftir áramót. Þegar Morgunblaðið ræddi við fulltrúa Bestlu í apríl sl. stóð til að hefja jarðvinnu í haust
Nauthólsvegur 79 Lóðin er á horni Nauthólsvegar og Flugvallarvegar.
Nauthólsvegur 79 Lóðin er á horni Nauthólsvegar og Flugvallarvegar. — Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson/RVK

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Jón Ágúst Garðarsson, framkvæmdastjóri byggingarfélagsins Bestlu, áformar að hefja jarðvinnu á Nauthólsvegi 79 eftir áramót.

Þegar Morgunblaðið ræddi við fulltrúa Bestlu í apríl sl. stóð til að hefja jarðvinnu í haust. Það hefur verið endurskoðað.

„Við erum að klára teikningar og munum senda þær inn í þessum mánuði. Byggingarfulltrúi fer svo yfir teikningarnar en það getur tekið einhverja mánuði. Síðan er gefið út byggingarleyfi og þá megum við girða af og koma upp aðstöðu.

Við höfum unnið

...