William Saliba, lykilmaður Arsenal, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann og hann missir því af stórleik liðsins gegn Liverpool í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á Emirates-vellinum í Lundúnum á sunnudaginn kemur. Saliba fékk að líta rauða spjaldið í 2:0-tapinu gegn Bournemouth um síðustu helgi og verður því fjarri góðu gamni á sunnudaginn kemur.

New York Liberty varð í fyrsta sinn WNBA-meistari í körfuknattleik kvenna þegar liðið hafði betur gegn Minnesota Lynx, 3:2, í úrslitaeinvígi sem lauk með sigri í oddaleik, 67:62, á mánudag. Félagið var stofnað árið 1997 og hafði áður tapað fimm úrslitaeinvígjum í WNBA-deildinni.

Tveir þjálfarar og átta leikmenn í Bestu deild karla í knattspyrnu voru á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær úrskurðaðir í leikbann og taka því engan þátt með liðum sínum í

...