Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu og stýrir því í Bestu deildinni á næsta tímabili. Samningur hans við Eyjamenn er til þriggja ára. Hann tekur við af Hermanni Hreiðarssyni sem hafði þjálfað Eyjamenn undanfarin…
Eyjar Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu. Skrifaði hann undir þriggja ára samning.
Eyjar Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu. Skrifaði hann undir þriggja ára samning. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu og stýrir því í Bestu deildinni á næsta tímabili. Samningur hans við Eyjamenn er til þriggja ára. Hann tekur við af Hermanni Hreiðarssyni sem hafði þjálfað Eyjamenn undanfarin þrjú tímabil og skilaði þeim aftur upp í Bestu deildina í haust eftir eins árs fjarveru þaðan.

Þorlákur, sem er 55 ára gamall, kemur til Eyja frá Portúgal þar sem hann þjálfaði kvennalið Damaiense í eitt ár, frá október 2023 og þar til fyrr í þessum mánuði þegar hann sagði starfi sínu lausu.

Hann hóf þjálfaraferilinn fyrir 28 árum, stýrði fyrst Ægi í Þorlákshöfn árið 1996 og hefur síðan þá þjálfað karlalið Vals í tvígang, karlalið Fylkis, kvennalið Stjörnunnar og karlalið Þórs. Einnig var hann um skeið yfir unglingaakademíu Brommapojkarna í Svíþjóð og yfirmaður knattspyrnumála hjá Hong Kong.