— Ljósmynd/Marie Staggat

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason forsetaherra eru nú stödd í Þýskalandi vegna 25 ára afmælis norrænu sendiráðanna í Berlín. Í tilefni afmælisins var í gær efnt til hátíðardagskrár með þátttöku þjóðhöfðingja og fulltrúa konungsfjölskyldna Norðurlanda. Meðan á heimsókninni stendur á Halla einnig tvíhliða fundi með forseta Þýskalands og forseta Finnlands.