Jazzklúbburinn Múlinn stendur fyrir tónleikum í kvöld, 23. október kl. 20, á Björtuloftum í Hörpu. Á þeim kemur gítarleikarinn og tónskáldið Daníel Helgason fram með tríói sínu. Daníel hljóðritaði sína fyrstu breiðskífu, Particles, í fyrra og hélt útgáfutónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur. Á tónleikunum í kvöld mun tríóið leika lög af plötunni auk nýs efnis. Með Daníel koma fram Birgir Steinn Theódórsson á bassa og trommuleikarinn Matthías MD Hemstock.