Þrenna Vinícius Júnior fór á kostum hjá Real Madríd í gærkvöldi.
Þrenna Vinícius Júnior fór á kostum hjá Real Madríd í gærkvöldi. — AFP/Thomas Coex

Real Madríd vann ótrúlegan 5:2-sigur á Borussia Dortmund í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla í gærkvöldi eftir að hafa verið 0:2 undir í hálfleik.

Bæði lið hafa nú unnið sér inn sex stig í fyrstu þremur umferðunum. Dortmund er í fimmta sæti og Real í því níunda.

Donyell Malen kom Dortmund í forystu eftir hálftíma leik áður en Jamie Bynoe-Gittens tvöfaldaði forystuna skömmu síðar.

Eftir klukkutíma leik minnkaði Antonio Rüdiger muninn fyrir heimamenn í Real Madríd og stuttu síðar var Vinícius Júnior búinn að jafna metin. Lucas kom Madrídingum yfir sjö mínútum fyrir leikslok og Vinícius Júnior bætti svo við öðru marki sínu og fjórða marki Real.

...