— Colourbox

Vefsíðan Reddit er einn vinsælasti samfélagsmiðill heims, þar sem notendur geta tekið þátt nafnlaust í fjölda spjallþráða um ákveðin umræðuefni. Spjallþræðirnir hafa yfirleitt mjög augljósan tilgang sem endurspeglast í nafni þeirra. Til dæmis er r/Funny fullt af fyndnum bröndurum og myndum. Því mætti halda að spjallþráðurinn r/anime_titties væri fullur af myndum af kvenbrjóstum úr japönskum teiknimyndum. En svo er ekki. Hann í raun yfirfullur af nýjustu heimsfréttunum og er mjög virkur í þeim efnum – og hefur verið það í næstum fjögur ár. Nánar á K100.is.