Knattspyrnumaðurinn Róbert Elís Hlynsson er genginn til liðs við KR frá uppeldisfélagi sínu ÍR. Róbert Elís, sem er fæddur árið 2007, skrifaði undir þriggja ára samning í Vesturbænum. Hann lék 22 leiki með ÍR í 1. deildinni á síðustu leiktíð þar sem liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar og tapaði fyrir Keflavík í undanúrslitum umspilsins.
Hann á að baki 13 leiki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hann hefur skorað tvö mörk.