Farin Shaina Ashouri lék með Þór/KA, FH og síðast Víkingi hérlendis.
Farin Shaina Ashouri lék með Þór/KA, FH og síðast Víkingi hérlendis. — Morgunblaðið/Eggert

Bandaríska knattspyrnukonan Shaina Ashouri er á förum frá Íslandi eftir þriggja og hálfs árs veru. Hún kom fyrst til Íslands árið 2021 og lék sex leiki með Þór/KA í efstu deild. Hún var næstu tvö ár hjá FH og var einn allra besti leikmaður liðsins, fyrst í 1. deild og svo úrvalsdeild. Sóknarkonan lék svo alla 23 deildarleiki Víkings úr Reykjavík á nýliðinni leiktíð og skoraði í þeim átta mörk. Alls lék hún 50 leiki í efstu deild og skoraði 16 mörk.