Sonja Berg fæddist á Landspítalanum við Hringbraut 1. júlí 1943. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði 3. október 2024.

Hún var borin og barnfædd í Reykjavík en ólst upp í fóstri á Fáskrúðsfirði frá þriggja mánaða aldri, en alltaf þó í tengslum við móður sína, sem bjó í Reykjavík.

Móðir Sonju Berg hét Þóra H. Jónsdóttir og faðir hennar Róbert William White sem hún kynntist aldrei. Fósturforeldrar hennar voru Oddný Þórormsdóttir og Óskar Jónsson móðurbróðir hennar.

Sonja taldi sig alltaf Fáskrúðsfirðing og var stolt af heimsins fegursta firði og fáir stóðu Sonju á sporði í landafræði og náttúrufræði.

16 ára flutti hún á mölina í höfuðstaðnum og bjó með móður sinni þangað til hún hóf búskap með manni sínum Sverri

...